Eftir Evrópumótið á síðasta ári voru breytingar gerðar á þjálfarateymi kvennalandsliðsins. Ólafur Kristjánsson var ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins og Amir Mehica var ráðinn markvarðarþjálfari í stað Ólafs Péturssonar.
Flestir fótboltaáhugamenn þekkja Ólaf enda hefur hann átt öflugan leikmanna- og þjálfaraferil þar sem hann gerði meðal annars karlalið Breiðabliks að Íslandsmeistara í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Flestir fótboltaáhugamenn þekkja Ólaf enda hefur hann átt öflugan leikmanna- og þjálfaraferil þar sem hann gerði meðal annars karlalið Breiðabliks að Íslandsmeistara í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Amir þekkja kannski færri en hann ætti samt sem áður að vera kunngur fótboltaáhugamönnum á Íslandi.
Amir er frá Bosníu og Hersegóvínu en hann kom fyrst hingað til lands árið 2005 til að spila með Haukum. Hann varð fljótt mikilvægur hluti af Haukaliðinu og spilaði stórt hlutverk á Ásvöllum næstu árin. Varði hann meðal annars mark Hauka árið 2009 þegar liðið fór upp í efstu deild.
Eftir veruna í Haukum fór hann í Fjarðabyggð og Víði Garði en fór fljótlega að mennta sig við þjálfun og það er sú leið sem hann hefur tekið. Amir er núna reynslumikill þjálfari sem er með UEFA A gráðu í markmannsþjálfun. Hann þjálfaði markverði hjá Aftureldingu um nokkurra ára skeið, þjálfar nú hjá Þrótti Reykjavík og hefur auk þess verið markmannsþjálfari í yngri landsliðum hjá KSÍ síðustu ár.
Mikill stemningsmaður og Begovic fylgist með
Amir er mikill stemningsmaður og sló í gegn í nýliðavígslu landsliðsins að sögn Glódísar Perlu Viggósdóttur, landsliðsfyrirliða.
„Mér fannst Amir ógeðslega fyndinn. Við erum með þjálfarana líka. Hann stóð upp úr, fór bara að bulla á bosnísku held og það var ógeðslega fyndið. Mér fannst þetta geggjað," sagði Glódís.
Telma Ívarsdóttir, markvörður landsliðsins, hrósaði þá Amir í viðtali við Fótbolta.net í vikunni. „Hann er virkilega skemmtilegur karakter og það er alltaf gaman á æfingum hjá honum," sagði Telma.
Það er greinilegt að Asmir Begovic, sem hefur lengi spilað á Englandi, fylgist vel með Amir því hann er dulegur að bregðast við innleggjum hans á LinkedIn, annað hvort með því að setja athugasemd eða með því að læka. Amir og Begovic eru báðir frá Bosníu en Begovic á það meðal annars á ferilskránni að hafa spilað með Chelsea. Hann hefur undanfarin ár haldið markmannsnámskeið fyrir unga og efnilega markverði í Úlfarsárdalnum og er því orðinn Íslandsvinur.



