Fotbolti.net
05.06.26 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nauðsynlegt að máta hana við hópinn

Jelena Tinna Kujundzic.

Jelena Tinna Kujundzic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Hafrún Rakel Halldórsdóttir þurfti að draga sig úr landsliðshópnum sem mætir Úkraínu og Spáni í tveimur leikjum í undankeppni HM.

Hafrún Rakel, sem er á mála hjá Bröndby í Danmörku, er meidd og kemur Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, inn í hennar stað. Jelena hefur ekki áður verið í hópnum.
Jelena kemur inn í landsliðshópinn fyrir Hafrúnu
TENGT EFNI

Jelena kemur inn í landsliðshópinn fyrir Hafrúnu

„Við vorum bjartsýn á þriðjudagskvöldið og þá leist okkur betur á að þetta gæti gengið. Svo þurfti hún að draga sig út á miðri æfingu í gær (miðvikudag) og þá sáum við að þetta væri ekki orðið það gott að hún gæti spilað og tekið frekar þátt í þessu," sagði Þorsteinn Halldórsson við Fótbolta.net í gær.

„Við tókum þá ákvörðun bara að skipta út. Jelena kemur bara inn í seinni leikinn."

Jelena hefur heillað Þorstein með frammistöðu sinni og fær tækifæri til að láta ljós sitt skína.

„Jelena hefur verið vaxandi og litið vel út. Við ákváðum að kalla hana inn núna. Þetta er ekki langur tími sem þú færð. Okkur fannst það nauðsynlegt að fá hana inn og máta hana við hópinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.