Franskir miðlar segja frá því að Newcastle sé búið að ná samkomulagi við Stade de Reims um kaup á markverðinum Ewen Jaouen.
Newcastle hefur verið í markvarðarleit eftir að ljóst varð að Aaron Ramsdale yrði ekki áfram hjá félaginu. Þá hefur ekki verið fullkomin ánægja með frammistöðu Nick Pope sem er kominn á lokaár sitt á samningi.
John Ruddy og Max Thompson yfirgáfu einnig félagið í lok tímabilsins á Englandi. Newcastle nýtti ekki 20 milljóna punda kaupmöguleika í lánssamningi Ramsdale sem er samningsbundinn Southampton.

Jaouen er tvítugur og er sagður kosta tæplega 25 milljónir punda. Samkvæmt L'Equipe greiðir Newcastle 21,6 milljónir punda og svo getur verðmiðinn hækkað um þrjár milljónir punda til viðbótar.
Jaouen hélt 15 sinnum hreinu í frönsku B-deildinni á tímabilinu og er sagður skrifa undir fjögurra ára samning við Newcastle. Chelsea, Dortmund og Real Madrid eru sögð hafa verið með augastað á Frakkanum.
Jaouen á að baki sex leiki fyrir yngri landslið Frakka og þar af eru tveir fyrir U21 landsliðið.