Hollenski stjórinn Arne Slot er án félags eftir brottrekstur frá Liverpool sem hann gerði að Englandsmeisturum í fyrra.
Það eru ýmis félagslið áhugasöm um að ráða Slot til starfa og greinir Times frá því að Hollendingurinn hafi hafnað starfstilboði frá Fulham.
Fulham er í leit að arftaka fyrir Marco Silva og ákvað að leita til Slot, sem hafnaði því að hefja viðræður við félagið.
Slot er 47 ára gamall og þjálfaði Cambuur, AZ Alkmaar og Feyenoord í heimalandinu áður en hann tók við Liverpool fyrir tveimur árum.
01.06.2026 09:33
Slot: Ég skildi við Liverpool nákvæmlega þar sem liðið á heima




