PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 15:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mielec
Tíu Íslendingar lögðu leið sína til Mielec
Eimskip
Frá Stadion Miejski.
Frá Stadion Miejski.
Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir
Aðstæður eru flottar hér á Stadion Miejski í Mielec, sem er í 150 kílómetra fjarlægð frá landamærunum við Úkraínu. Þetta er heimavöllur Stal Mielec sem leikur í næst efstu deild Póllands og var í botnbaráttu þar á tímabilinu sem var að líða.

Framundan er leikur Íslands og Úkraínu í undankeppni HM en hér spilar Úkraína á heimavelli út af stríðinu ömurlega.

Lestu um leikinn: Úkraína 0 -  1 Ísland

Reiknað er með um 300 áhorfendum á leiknum, þar af um tíu Íslendingum. Þá eru þrír íslenskir fjölmiðlamenn á staðnum. Völlurinn tekur tæplega 7000 manns í sæti.

Úkraínsk þjóðlagatónlist ómar um völlinn fyrir leik og stemningin er góð. Veðrið leikur einnig við gesti og gangandi, gráskýjað en um 20 stiga hiti.

Leikurinn fer af stað klukkan 16:00 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner