Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fös 05. júní 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttulandsleikir: Mexíkó rúllaði yfir Serbíu - Tékkar unnu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru tveir vináttulandsleikir fram í nótt þar sem tvær HM-þjóðir mættu til leiks.

Mexíkó tók á móti Serbíu og vann þægilegan 5-1 sigur eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Raúl Jiménez er meðal leikmanna sem komust á blað en þetta var síðasti leikur Mexíkóa fyrir upphafsflautið á HM á heimavelli.

Mexíkó spilar við Suður-Afríku, Suður-Kóreu og Tékkland í riðlakeppninni en Tékkar mættu einnig til leiks í nótt.

Tékkland lagði Gvatemala að velli í New Jersey en staðan var óvænt 1-1 í leikhlé. Lokatölur 3-1.

Mexíkó 5 - 1 Serbía
0-1 Petar Stanic ('19 )
1-1 Johan Vasquez ('34 )
2-1 Stefan Bukinac ('45 , sjálfsmark)
3-1 Raul Jimenez ('57 )
4-1 ('72 , sjálfsmark)
5-1 Luis Chavez ('90 )

Tékkland 3 - 1 Gvatemala
1-0 Patrik Schick ('11 )
1-1 ('40 )
2-1 Tomas Chory ('72 )
3-1 Denis Visinsky ('79 )

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner