Fotbolti.net
27.07.26 - 21:08
Brynjar Ingi Erluson

Undirbúa tilboð í Leao

Undirbúa tilboð í Leao
Canon

Mynd: EPA

Tyrkneska stórveldið Fenerbahce undirbýr tilboð í portúgalska vængmanninn Rafael Leao hjá AC Milan.
Fenerbahce sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem félagið þvertók fyrir að hafa lagt fram risatilboð í Rafael Leao.

Portúgalinn hefur lýst yfir vilja sínum til að róa á önnur mið eftir sjö ár hjá Milan.

Fabrizio Romano segir Fenerbahce nú leiða kapphlaupið um Leao. Stjórnarmenn tyrkneska félagsins ætla að funda með stjórnendum Milan og umboðsmönnum leikmannsins, en þar verður formlegt tilboð lagt á borðið.

Fenerbahce vill kaupa Leao en ekki fá hann að láni. Gerry Cardinale, eigandi Milan, hefur enda ekki opnað á þann möguleika að lána leikmanninn.

Leao er 27 ára gamall og hefur komið að 114 mörkum í 227 deildarleikjum fyrir Milan. Hann hefur einu sinni orðið ítalskur meistari með félaginu, verið valinn besti leikmaður deildarinnar og þrisvar sinnum átt sæti í liði ársins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.