05.08.26 - 10:46
Elvar Geir Magnússon
Ekki búist við afsögn Infantino á krísufundinum

Kemur afsökunarbeiðni frá Gianni Infantino í dag?

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svíinn Mattias Grafström, varaforseti FIFA.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Victor Montagliani, forseti Concacaf.

Gianni Infantino, hinn umtalaði forseti FIFA, heldur krísufund í Rabat, höfuðborg Marokkó, í dag. Hann hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA.
Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka en staða Infantino sem forseti FIFA hefur veikst verulega.
Í dag mun Infantino funda með æðstu ráðamönnum FIFA en fundurinn verður í Rabat, höfuðborg Marokkó. Búist er við því að Infantino mun reyna að leita lausna til að halda sæti sínu sem forseti FIFA.
Meðal þeirra sem munu sitja fundinn er Mattias Grafström, framkvæmdastjóri FIFA, sem hefur bæst í stóran hóp þeirra sem hafa gagnrýnt hugmyndirnar. Hann hefur verið hægri hönd Infantino undanfarin ár. Grafström sendi tölvupóst til starfsfólks FIFA þar sem hann lýsti síðustu viku sem „harmleik og atburðarás sem verðskuldi ámæli“.

TENGT EFNI
Infantino kallar saman til krísufundar - Sakaður um fjárkúgun
Mun koma afsökunarbeiðni og loforð um bót og betrun?
BBC segir að ólíklegt sé að Infantino muni segja af sér á fundinum. Engin merki séu um að hann sé að meta stöðu sína. Hann er frekar að vinna í að virkja kjarna þeirra stuðningsmanna sem hann hefur enn. Í vikunni sendu Afríkulöndin Egyptaland, Marokkó, Níger, Máritanía og Kongó öll út yfirlýsingu til stuðnings Infantino.
Infantino mun á fundinum þurfa að svara stórum spurningum eftir atburðarásina sem hefur skaðað ímynd FIFA. Hugsanlega verða einhverjir í salnum sem munu draga í efa getu hans til að snúa þessu við, ekki síst í ljósi harðrar gagnrýni frá Evrópulöndum.
Líklegast er talið að Infantino líti á fundinn sem upphaf á því að berjast til baka fyrir stöðu sinni. Möguleiki er á að send verði yfirlýsing með afsökunarbeiðni og loforði um bót og betrun.
Hvernig er hægt að koma Infantino frá völdum?
Ef Infantino ákveður að halda áfram verða UEFA og önnur lönd sem vilja fá hann frá völdum að finna aðrar leiðir. Hvaða leiðir eru mögulegar?
Stjórn FIFA gæti reynt að þvinga Infantino til hætta með því að boða til neyðarfundar. Slíkur fundur yrði boðaður ef 19 af 37 stjórnarmönnum FIFA færu fram á það. Hinsvegar herma heimildir BBC að ólíklegt sé að ná saman þessum 19 atkvæðum.
Önnur leið væri að boða til aukaþings þeirra 211 aðildarlanda sem eru undir FIFA. Slíkt þing yrði haldið ef fimmtungur þeirra, eða 43, „færu fram á það skriflega“. UEFA, sem telur 55 þjóðir, getur því boðað til aukaþings hvenær sem samtökin kjósa. Það ferli myndi líklega taka um þrjá mánuði og ekki vitað hverju það myndi skila. Þörf væri á 106 atkvæðum til að samþykkja vantrauststillögu.
Þriðja leiðin er að finna hæfan frambjóðanda til að keppa um embættið á þingi FIFA í mars. Enginn bauð sig fram gegn Infantino þegar hann var endurkjörinn árin 2019 og 2023, og ef einhver vill skora á hann þarf að tilkynna framboð fyrir 18. nóvember. En ekki er víst að slíkt beri árangur. Þegar hneykslismál FIFA stóðu sem hæst árið 2015 var Sepp Blatter endurkjörinn forseti, aðeins átta dögum áður en hann sagði að lokum af sér.
Sá aðili sem er talinn líklegastur til að bjóða sig fram gegn Infantino er Victor Montagliani frá Kanada, forseti Concacaf (fótboltasambands Norður- og Mið-Ameríku) en hann er jafnframt varaforseti FIFA.

Heimild: BBC