Gunnar Guðmunds: Alltof margir ekki tilbúnir í þennan slag
Auglýsing

Gunnar Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég var mjög ósáttur við mína menn í dag,\" sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari Gróttu eftir 2-0 tap gegn Selfyssingum í mikilvægum fallslag í 1. deildinni í dag.
„Í fyrri hálfleik voru alltof margir í liðinu hjá okkur sem voru ekki tilbúnir í þennan slag sem var til staðar í dag. Það er alveg ljóst.\"
Grótta hefur einungis skorað níu mörk í 1. deildinni í sumar. Hvað hefur vantað upp á í sóknarleiknum?
„Í raun er það oft skynsamlegri ákvarðanir. Auðvitað liggjum við til baka og erum ekki að skapa mörg færi. Við komumst samt oft í góða stöðu þar sem við tökum rangar ákvarðanir. Oft vantar knattspyrnlega skynsemi í því sem við erum að gera.\"
Grótta er í mjög vondum málum í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir en liðið er fimm stigum á eftir Selfyssingum.
„Við verðum að vinna báða leikina okkar og Selfoss að tapa báðum sínum. Að sjálfsögðu höldum við áfram baráttunni og stefnum á að taka sex stig í síðustu tveimur leikjunum. Við verðum að halda trúnni þegar sénsinn er til staðar og við höldum að sjálfsögðu áfram.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.