Fotbolti.net
05.09.17 - 21:44
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Helgi Kolviðs: Það geta allir unnið alla

Auglýsing
Helgi Kolviðs: Það geta allir unnið alla
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Ég er mjög sáttur við það að allt sem við settum upp, gekk upp og strákarnir spiluðu mjög agaðan leik og það var akkurat það sem við þurftum,\" sagði Helgi Kolviðsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, eftir 2-0 sigur á Úkraínu í kvöld.
„Þeir byrjuðu vel og maður sá alveg hvað þeir geta og ef þeir fá tíma þá eru þeir stórhættulegir en við vorum öflugir í því að tvöfalda oft í varnarvinnunni, vorum góðir að mæta þeim á réttum tíma þannig að þeir fengu ekki mikinn tíma. Þeirra aðalleikmenn, Konoplyanka og Yarmalenko, við náðum að taka þá alveg algjörlega út úr leiknum. Uppspilið, við náðum að stoppa það þannig að þessir hlutir sem við fórum fram á og ætluðum að gera gengu bara upp.\"

„Við ætluðum algjörlega að halda okkar skipulagi og vera þolinmóðir og við vissum af því að ef við myndum halda okkar skipulagi þá myndum við fá möguleika og það var nákvæmlega það sem gerðist í leiknum.\"

„Emil er ekki sá yngsti þannig að hann er með reynslu og hann veit hvað hann er að gera. Að sjálfsögðu var ekki skemmtilegt að hann fengi spjald eftir eina og hálfa mínútu en hann er skynsamur og hann kom alltaf betur og betur inn í leikinn. Maður sá bara hvað hann er mikilvægur í þessari stöðu, til að dreifa boltanum, róa spilið niður, bæði upp á tímastjórnun í leiknum og það var það sem þeir gerðu hann og Aron og bara allir mjög vel í leiknum.\"

„Öll vörnin var solid og við vissum af því, eins og við höfum sagt við erum með marga stráka fyrir utan sem við myndum treysta til að spila. Nú eru tveir leikir á þremur dögum, þetta var erfiður leikur í Finnlandi, við vorum einum manni undir. Það voru mikil hlaup hjá Kára, hann var eiginlega bakvörður og hafsen í þeim leik. Þannig að við ákváðum að koma með ferskan mann inn og það er bara maður í mann stað. Þetta er eitt lið og við ákváðum að taka þetta í dag og hann kom bara gríðarlega vel inn, eins og við bjuggumst við.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.