Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. september 2022 10:20
Elvar Geir Magnússon
Sami dómari og dæmdi fyrri leikinn gegn Hollandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enski dómarinn Rebecca Welch mun dæma stórleik Hollands og Íslands í undankeppni HM annað kvöld.

Áhugavert er að hún dæmdi líka fyrri viðureign þessara liða í riðlinum, þegar Holland vann 2-0 útisigur á Laugardalsvelli.

Welch varð í fyrra fyrsta konan til að fá úthlutaðan leik í enska deildakerfinu karlamegin.

Natalie Aspinall og Sian Massey eru aðstoðardómarar leiksins en báðar starfa þær sem aðstoðardómarar í ensku úrvalsdeildinni.

Abigail Marriott er fjórði dómari.

Um er að ræða hreinan úrslitaleik Hollands og Íslands í Utrecht á morgun. Sigurliðið kemst beint á HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári, Íslandi nægir jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner