14.10.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Rooney telur Martínez hafa gert stór mistök

Lisandro Martínez

Mynd: EPA

Wayne Rooney

Mynd: EPA

Jason Wilcox gæti selt Martínez

Mynd: EPA

Lisandro Martínez

Mynd: EPA
Wayne Rooney, goðsögn Manchester United, telur að Lisandro Martínez hafi gengið of langt með ummælum sínum eftir 2-0 tap liðsins gegn Atlético Madríd í Meistaradeildinni í gær.

TENGT EFNI
„Ég ætla ekki að halda kjafti, annars mun ekkert breytast“
Martínez gagnrýndi stjórnarmenn United harðlega eftir leikinn og beindi spjótum sínum sérstaklega að Jason Wilcox, yfirmanni fótboltamála hjá United, fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.
Ummælin vöktu mikla athygli og virtist Martínez jafnvel hafa verið búinn að ákveða fyrirfram að láta stjórnarmenn heyra það ef United tapaði leiknum.
Rooney, sem er markahæsti leikmaður í sögu United, telur að Martínez hafi gengið of langt og að hann hefði átt að ræða þessi mál innan félagsins.
„Ég er ósammála honum. Mér fannst frammistaðan ágæt og í raun betri en það sem við höfum séð frá liðinu að undanförnu. Það var ýmislegt jákvætt í þessum leik.“
„Þetta er flókið mál því ég var sjálfur mjög hreinskilinn þegar ég var leikmaður og mér finnst mikilvægt að menn geti sagt sína skoðun. En mér finnst hann hafa gengið aðeins of langt. Þetta hefði átt að haldast innan félagsins.“
Rooney skilur þó að einhverju leyti gremju Martínez en telur að ummælin gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð hans hjá félaginu.
„Stuðningsmenn vilja heyra leikmenn tjá sig og finna að þeim sé annt um félagið. Það er augljóst að Martínez er annt um United og vill að félagið fjárfesti meira í leikmönnum. En ef ég á að vera hreinskilinn þá gætu þessi ummæli orðið til þess að hann verði einn af þeim sem félagið ákveður að losa sig við.“
Rooney segir að Martínez þurfi einnig að líta í eigin barm og fannst gagnrýnin ekki alveg eiga rétt á sér miðað við frammistöðu United gegn Atlético.
„Hans eigin frammistaða hefur ekki verið nógu góð. Hann hefur þó að einhverju leyti rétt fyrir sér því United þarf að styrkja bæði sóknina og vörnina. En mér fannst þetta svolítið eins og hann hefði ákveðið fyrirfram að koma þessum skilaboðum á framfæri. Hann virtist einfaldlega vilja segja þetta því mér fannst gagnrýnin ekki endurspegla frammistöðuna í leiknum. Mér fannst liðið í raun spila betur en það hefur gert,“ sagði Rooney í lokin.