Fotbolti.net
05.09.26 - 19:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

2. deild: Nauðsynlegur sigur hjá Kára - Mögnuð endurkoma hjá Dalvík/Reyni

2. deild: Nauðsynlegur sigur hjá Kára - Mögnuð endurkoma hjá Dalvík/Reyni
Canon

Mynd: Kári

Kári vann dýrmætan sigur á Magna í 2. deild í dag. Liðið heldur í vonina um að vinna sér sæti í Lengjudeildinni næsta sumar.

Marinó Hilmar Ásgeirsson kom Kára yfir og Grétar Jónatan Pálmason skoraði annað markið strax í kjölfarið og tryggði liðinu stigin þrjú.

Kári er þremur stigum á eftir Selfossi í baráttunni um 2. sætið. Kári mætir toppliði Hauka í lokaumferðinni og Selfoss mætir KFG sem er í harðri fallbaráttu. Magni er í 9. sæti með 25 stig og er laus við fall.

Dalvík/Reynir vann KFA í mögnuðum leik. KFA náði tveggja marka forystu en Dalvík/Reynir náði að minnka muninn undir lok fyrri háflleiks og skoraði svo tvö mörk í seinni hálfleik.

2. deild: Selfoss vann toppslaginn og er skrefi nær Lengjudeildinni - Hvíti riddarinn fallinn
TENGT EFNI

2. deild: Selfoss vann toppslaginn og er skrefi nær Lengjudeildinni - Hvíti riddarinn fallinn

Magni 0 - 2 Kári
0-1 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('21 )
0-2 Grétar Jónatan Pálmason ('23 )

KFA 2 - 3 Dalvík/Reynir
1-0 Patrekur Aron Grétarsson ('10 )
2-0 Marc Sirvent Espi ('23 )
2-1 Gabriel Lukas Freitas Meira ('43 )
2-2 Atli Þór Sindrason ('73 )
2-3 Áki Sölvason ('79 )

2. deild karla

#LiðLmunStig
1Haukar22+2347
2Selfoss22+1945
3Kári22+2742
4Dalvík/Reynir22031
5Víkingur Ó.22-831
6Fjölnir22+330
7KFA22+629
8Kormákur/Hvöt22+427
9Magni22-1925
10Þróttur V.22-923
11KFG22-2022
12Hvíti riddarinn22-2617
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.