05.09.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ásdís Karen þreytti frumraun sína - Andrea Rut lagði upp

Andrea Rut

Mynd: Anderlecht

Andrea Rut

Mynd: Anderlecht
Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir komu við sögu þegar Anderlecht vann 4-0 sigur á Genk í fyrstu umferð belgísku deildarinnar í dag.
Staðan var 1-0 í hálfleik. Þær komu báðar inn á eftir um klukkutíma leik.

Anderlecht bætti við þremur mörkum á fimm mínútna kafla en Andrea Rut lagði upp eitt af mörkunum.
Katla Tryggvadóttir var í byrjunarliði Fiorentina sem tapaði 3-0 gegn Roma í 3. umferð ítalska bikarsins og er úr leik.
Ásdís Karen Halldórsdóttir spilaði sinn fyrsta leik fyrir AIK gegn Eskilstuna í sænsku deildinni. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Eskilstuna.