Fotbolti.net
05.09.26 - 17:08
Haraldur Örn Haraldsson

Brynjar Björn: Þroskinn á liðinu ekki kominn lengra en þetta

Auglýsing
Brynjar Björn: Þroskinn á liðinu ekki kominn lengra en þetta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

„Það er alltaf erfið staða að hafa ekkert að spila fyrir," sagði Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari Leiknis eftir 3-2 tap gegn ÍR í dag.

Lestu um leikinn: ÍR 3 - 2 Leiknir R.

„Við vorum bara lélegir í fyrri hálfleik. Það er ekkert flóknara en það, á móti grimmu ÍR liði sem vildu meira í fyrri háflleik.  Það bara kom okkur um koll, alveg sama hvað þú minnir menn á, eða talar mikið um það. Þá er þroskinn á liðinu ekki kominn lengra en þetta, það er eitthvað sem við verðum að læra af," sagði Brynjar.

Leiknismenn byrjuðu leikinn ágætlega en fá á sig víti mjög snemma leiks og eftir það var mikil breyting á þeirra leik.

„Það er svona fyrsta markið er bara ódýrt. Við kiksum eitthvað boltann eftir innkast og það bara hjálpar liði eins og ÍR í svona stöðu. Það gefur þeim sjálfstraust og grimmd, þeir fá eitthvað til að hanga á. Það er alveg rétt, við byrjum leikinn svo sem allt í lagi, svo bara höfðum við ekki annan gír þegar við lendum undir í fyrri hálfleik. Við náum okkur ekkert upp úr því fyrr en við gerum skiptingar og náum að þrýsta ÍR-ingunum til baka," sagði Brynjar.

Tímabilið er þá búið hjá Leikni og Brynjar er nokkuð sáttur með hvernig það gekk til.

„Við áttum ágætis fyrri umferð. Við missum einhvern takt um mitt mót í seinni umferðinni. Það voru þrír, fjórir leikir þar sem við hefðum viljað sækja fleiri stig. Þá hefðum við hugsanlega verið með þetta fjórum til fimm stigum meira í dag og verið að spila um það að komast í umspilið eða eitthvað slíkt, það er svo stutt á milli. Það er eitthvað við þurfum að læra af og liðið að halda fókus allt tímabilið. Það er enginn sem kemur og gefur þér eitt né neitt," sagði Brynjar.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.