05.09.26 - 23:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Wrexham náði í stig gegn toppliðinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Swansea 0 - 0 Wrexham
Velsku liðin Swansea og Wrexham mættust í Championship deildinni í kvöld. Wrexham nældi í sinn fyrsta sigur í síðustu umferð og var með fimm stig eftir fjórar umferðir en Swansea var á toppnum með tíu stig.
Swansea vildi fá vítaspyrnu þegar Melker Widell skaut boltanum í höndina á Ryan Longman en ekkert dæmt.
Wrexham fékk gott færi snemma í seinni hálfleik en Callum O'Hare hitti boltann illa. Wrexham vildi frá rautt spjald á Ben Cabango fyrir brot á O'Hare en ekkert dæmt.
Markalaust jafntefli niðurstaðan. Swansea er á toppnum með 11 stig en Wrexham er í 10. sæti með sex stig.