Fotbolti.net
05.09.26 - 17:34
Sigurjón Árni Torfason

Davíð Smári: Það er engu að fagna hér í dag

Auglýsing
Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur

Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin

Njarðvík tók á móti Aftureldingu á JBÓ-vellinum í Njarðvík í lokaumferð hefðbundins leiktímabils í Lengjudeildinni. Heimamenn höfðu betur, 2-1, í leik sem var heilt yfir frekar bragðdaufur. Njarðvíkingar gerðu þó nóg til þess að tryggja sér stigin þrjú áður en liðin halda inn í umspilið.


Fótbolti.net var að sjálfsögðu á svæðinu í Njarðvík og tók stöðuna á Davíð að leik loknum.

Lestu um leikinn: Njarðvík 2 - 1 Afturelding
„Bara sáttur með leikinn. Vel spilaður leikur af okkar hálfu og höldum áfram að eiga góða leiki hérna heima."

Næsta verkefni Njarðvíkinga er umspilið um sæti í Bestu deildinni, þar mæta þeir Þrótti.

„Mér líst bara vel á þá. Ég held við eigum enn þá eftir að eiga okkar bestu frammistöður gegn þeim og vonandi bara er sá dagur framundan.´´

Davíð Smári þekkir umspilið betur en flestir, reynsla hans að fara upp í Bestu deildina eftir umspil gæti reynst dýrmæt.

„Ég bara veit það ekki. Ég bara horfi á það að við erum að fara að spila við gríðarlega stórt félag í Þrótti. Miðað við stöðuna í töflunni og annað þá hljótum við að vera að fara að spila á móti stærra liði heldur en Njarðvík. Þetta verður erfitt fyrir okkur á móti gríðarlega sterku liði Þróttar og vel þjálfuðu liði, liði sem er virkilega vel spilandi og við förum bara inn í það verkefni til að klára það."

Hvernig metur Davíð líkurnar á því að Njarðvík verði í Bestu deild karla árið 2027?

„Það er algjörlega ómögulegt að segja. Við þurfum bara að eiga okkar besta dag í næstu vonandi þremur leikjum og þá getum við fagnað en það er engu að fagna hér í dag nema bara að venjulegu móti er lokið og nú tekur við bara æfing í fyrramálið og æfing á mánudaginn og æfing á þriðjudaginn og svo leikur á miðvikudaginn. Þannig að það er stutt á milli í þessu." sagði Davíð við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.