Fotbolti.net
05.09.26 - 18:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Vandræði Aston Villa halda áfram

England: Vandræði Aston Villa halda áfram
Canon

Mynd: EPA

Hull City 0 - 0 Aston Villa
Nýliðar Hull fengu Aston Villa í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hull hefur byrjað tímabilið frábærlega og vann fyrstu tvo leikina sína. Aston Villa hafði hins vegar tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Nicolas Jackson fékk tækifæri strax í upphafi leiks til að koma Aston Villa yfir en skallaði framhjá. Fyrsta tilraun Aston Villa á markrammann á tímabilinu kom eftir tæplega stundafjórðung.

Hinn George Hemmings átti skot sem fór beint á Konstantinos Tzolakis í marki Hull.

Bæði lið fengu góð færi til að skora í seinni hálfleik en markalaust jafntefli var niðurstaðan. Hull er með sjö stig eftir þrjár umferðir en Aston Villa nældi í sitt fyrsta stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.