Fotbolti.net
05.09.26 - 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Flautað af hjá Alfons og Stefáni vegna óláta

Flautað af hjá Alfons og Stefáni vegna óláta
Canon

Mynd: Go Ahead Eagles

Stuðningsmenn Utrecht voru með læti þegar liðið fékk Go Ahead Eagles í heimsókn í hollensku deildinni í dag.

Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru í byrjunarliði Go Ahead en liðið var með 3-0 forystu eftir tæplega klukkutíma leik.
Stuttu síðar flautaði dómarinn leikinn af þar sem stuðningsmenn Utrecht köstuðu flugeldum inn á völlinn. Leikurinn hélt áfram um tuttugu mínútum síðar en var flautaður aftur af stuttu síðar þar sem allskyns lausahlutum var kastað á völlinn og þá ákvað dómarinn að leik yrði hætt. Go Ahead Eagles er með sjö stig eftir fjórar umferðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.