Fotbolti.net
05.09.26 - 16:59
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Gunnar Heiðar: Besti maðurinn í þessari deild í sumar

Auglýsing
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Bara góð, bara virkilega skemmtilegt. Sérstaklega á þessum ÍK degi,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, eftir 2-1 sigur á Fylki í lokaumferð Lengjudeildar karla í dag.

Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Fylkir

„Þeir fagna 50 ára afmæli í ár og virkilega gaman að fá svona marga í stúkuna og þessi stemning sem er búin að vera. Mér fannst strákarnir sína það að þeir vildu spila fyrir þá líka og að fara með þetta veganesti inn í umspilið er bara frábært,“ hélt hann svo áfram en mikil stemning var í Kórnum í dag til að fagna þessu 50 ára afmæli ÍK og spilaði HK liðið í sérstökum treyjum í tilefni þess. 

HK og Fylkir mætast aftur í umspilinu en aðspurður hvort að þeir geti tekið eitthvað sérstakt með sér út þessum leik inn í einvígið segir hann:

„Nei, nei, bara halda áfram því sem við erum búnir að vera að gera. Við erum náttúrulega búnir að vera á vegferð. Ég veit að þetta orð, það má varla segja það í íslenskum fótbolta lengur, eins og það sé að búa til einhverja afsökun fyrir því að það gangi illa en við erum á vegferð, við erum það og einn partur af því að gera HK aftur að topp tíu liðum á Íslandi er að búa til vígi úr heimavellinum og við erum búnir að gera það hérna í Kórnum, við töpuðum ekki leik hérna í allt sumar og það er frábært veganesti. Auðvitað er fullt af hlutum sem þarf að bæta og mér finnst að stígandinn í liðinu er búinn að vera mjög góður.“

Dominik Radic, sem skoraði annað mark HK og jafnaði þar með Joacim Holtan sem markahæsti maður deildarinnar, var tekinn út af eftir klukkutíma leik. Hann hefur væntanlega ekki verið neitt sérstaklega sáttur með það.

„Hann var búinn að gera nóg, ha? Það eru tveir til þrír leikir eftir og við þurfum að reyna að nýta hann eins vel og við getum. Hann er náttúrulega búinn að vera stórkostlegur fyrir okkur í allt sumar og klárt fyrir mér að hann er búinn að vera besti maðurinn í þessari deild í sumar. Það er ánægjulegt að sjá það að þetta samstarf okkar virkar allavega ennþá.“

Viðtalið við Gunnar Heiðar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.