Fotbolti.net
05.09.26 - 17:10
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Heimir Guðjóns: Ég hef oft farið í svona einvígi

Auglýsing
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Þetta var bara fínn leikur að mörgu leyti af okkar hálfu,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-1 tap gegn HK í Kórnum í dag.

Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Fylkir

„Spiluðum á köflum mjög vel. Vandræðin okkar í þessum leik voru þau að við vorum að missa boltann á slæmum stöðum og hleypa þeim í skyndisóknir og við þurfum bara að laga það fyrir miðvikudaginn,“ hélt hann svo áfram. 

Fylkir mætir HK einmitt á miðvikudaginn í umspilinu, er eitthvað sérstakt sem liðið getur tekið með sér úr þessum leik inn í einvígið?

„Já, ég meina fullt af hlutum. Við þurfum bara að setjast yfir þetta og skoða leikinn aftur en eins og ég sagði þá sköpuðum við, skoruðum eitt mark, sköpuðum fín færi en eins og ég sagði áðan að vandræðin okkar voru þau að við vorum að tapa boltanum of mikið í slæmum stöðum og fá þá í skyndisóknir sem þeir eru góðir í. Svo eru þeir bara með Radic þarna frammi sem er frábær framherji og við þurfum að hafa betri gætur á honum á miðvikudaginn. Tvö góð lið og vonandi verður þetta bara hörku einvígi og skemmtilegt.“

Fylkir er eina liðið á leiðinni í umspilið sem hefur ekki tekið þátt í því áður en hin þrjú liðin voru öll í þessum sporum í fyrra. Aðspurður hvort það sé eitthvað sem gæti haft áhrif segir hann glottandi:

„Ég meina það er bara góð spurning ég bara veit það ekki en ég hef oft farið í svona einvígi þannig það hjálpar liðinu líka.“

Viðtalið við Heimi má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.