Fotbolti.net
05.09.26 - 20:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Ítalía: Mjög dramatískir endurkomusigrar hjá Inter og Roma

Ítalía: Mjög dramatískir endurkomusigrar hjá Inter og Roma
Canon

Mynd: EPA

Roma og Inter eru áfram með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í ítölsku deildinni eftir dramatíska sigra.

Roma lenti undir gegn Atalanta strax í upphafi seinni hálfleiks. Mario Hermoso jafnaði metin undir lokin og Matias Soule tryggði liðinu stigin þrjú með marki í uppbótatíma.

Það var önnur eins dramatík þegar Inter fékk Napoli í heimsókn. Napoli náði tveggja marka forystu með mörkum frá Matteo Politano og Rasmus Höjlund með þriggja mínútna millibili.

Lautaro Martinez minnkaði muninn, Marcus Thuram jafnaði síðan metin þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma og Martínez bætti við sínu öðru marki og tryggði Inter sigurinn í uppbótatíma.

Þá vann Torino sigur á Fiorentina. Þetta var fyrsti sigur Torino en Fiorentina er á botninum án stiga.
Roma 2 - 1 Atalanta
0-1 Ederson Silva ('47 )
1-1 Mario Hermoso ('89 )
2-1 Matias Soule ('93 )

Fiorentina 1 - 2 Torino
1-0 Mateo Pellegrino ('47 )
1-1 Rolando Mandragora ('73 )
1-2 Che Adams ('82 )

Inter 3 - 2 Napoli
0-1 Matteo Politano ('50 )
0-2 Rasmus Hojlund ('53 )
1-2 Lautaro Martinez ('56 )
2-2 Marcus Thuram ('82 )
3-2 Lautaro Martinez ('91 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.