Fotbolti.net
05.09.26 - 17:17
Sigurjón Árni Torfason

Maggi: Stærsti leikur félagsins

Auglýsing
Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar

Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Afturelding heimsótti Njarðvík á JBÓ-vellinum í lokaumferð Lengjudeildarinnar í dag. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna í Njarðvík í bragðdaufum leik. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir og heyrðu í Magga eftir leik.
Lestu um leikinn: Njarðvík 2 - 1 Afturelding
„Það er alltaf svekkjandi að tapa. Ég er samt ánægður með strákana fyrir að halda áfram allan tímann, ná þessu marki í lokin og reyna að jafna leikinn.´´

„Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður hjá okkur en sá seinni var betri. Þetta var klárlega ekki besti leikurinn okkar í sumar. Við vorum að spila gegn mjög góðu liði og Njarðvík er einn af erfiðari útivöllunum að heimsækja. Við vissum því að þetta yrði erfiður leikur.“

Afturelding hafði tryggt sér titilinn um síðustu helgi og telur þjálfarinn að ákveðið spennufall kunni að hafa haft áhrif á liðið.

„Við vorum bara ekki nógu góðir í dag og það var örugglega ákveðið spennufall eftir að hafa tryggt titilinn um síðustu helgi. Við vorum viðbúnir því að það gæti gerst.´´

„Við höfum verið frábærir í stóru leikjunum í sumar og nú er fram undan stór leikur á Laugardalsvelli. Þessi leikur fer því bara beint til hliðar og öll einbeiting fer á þann næsta.“

Stærsti leikur í sögu knattspyrnudeildarinnar.

Næst á dagskrá hjá Aftureldingu er bikarúrslitaleikur gegn Breiðabliki á Laugardalsvelli. Um er að ræða stærsta einstaka leik í sögu knattspyrnudeildar Aftureldingar að mati þjálfarans.

„Saga félagsins er náttúrulega löng, enda er Afturelding 116 ára gamalt félag, en knattspyrnudeildin er 52 ára. Ég held að það sé engin spurning að þetta sé stærsti einstaki leikurinn hingað til.´´

„Þetta verður ótrúlega gaman og ég hlakka mikið til að sjá Mosfellinga fjölmenna á Laugardalsvöll.“

Afturelding þekkir vel til þess að spila úrslitaleiki á þjóðarleikvanginum. Þetta verður í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem liðið leikur úrslitaleik á Laugardalsvelli.

„Stuðningurinn hefur verið sturlaður hingað til og ég held að við í liðinu viljum meira. Ég held að það sama eigi við um stuðningsmennina og að við eigum eftir að fá enn meiri stuðning.´´

„Það var bæjarhátíð í Mosfellsbæ um síðustu helgi og við fórum í gegnum hverfin með titilinn eftir sigurinn og kíktum á stemninguna. Maður finnur að allir ætla að mæta á þennan leik. Það er talað um hann út um allan bæ og það er mikil spenna og tilhlökkun.“

Þjálfarinn segir liðið þurfa að sýna sömu frammistöðu og það hefur gert í stærstu leikjum sumarsins.

„Við þurfum að vera klárir og sýna sömu frammistöðu og við höfum sýnt í sumar. Við höfum sýnt að við getum spilað góðan fótbolta og hvað við viljum standa fyrir.´´

„Ég hlakka gríðarlega mikið til að mæta í Laugardalinn, vonandi með nánast allt bæjarfélagið með okkur í stúkunni.“

Það er fótboltaæði í Mosfellsbæ.

Stuðningsmenn Aftureldingar hafa fjölmennt á leiki liðsins í sumar og búast má við öflugum stuðningi þegar liðið mætir Breiðabliki í úrslitaleiknum. Þjálfarinn segir stuðning Mosfellinga skipta liðið gríðarlega miklu máli.

„Hvort sem maður var í bláa hverfinu, bleika hverfinu, rauða hverfinu eða gula hverfinu á bæjarhátíðinni um síðustu helgi, þá finnur maður að allir ætla að mæta.´´

„Þetta er eitt bæjarfélag og eitt lið. Allir í Mosfellsbæ halda með Aftureldingu. Maður finnur fyrir þvílíkum stuðningi og meðbyr. Það skiptir ekki máli hvort maður er að versla í Krónunni eða fara með börnin á leikskólann, það eru allir að tala um þennan leik og allir eru saman í þessu.“

Stemningin í kringum knattspyrnuliðið hefur byggst jafnt og þétt upp undanfarin ár og segir þjálfarinn mikla eftirvæntingu ríkja í Mosfellsbæ fyrir úrslitaleiknum.

„Það er einfaldlega fótboltaæði í Mosfellsbæ. Sú stemning er ótrúlega skemmtileg, hefur byggst upp undanfarin ár og verður sífellt meiri. Sjálfboðaliðarnir í kringum félagið hafa unnið frábært starf og það er ótrúlega gaman að fá að taka þátt í þessu.´´

„Ef Mosfellingar ætla einhvern tímann að mæta á fótboltaleik, þá er það þessi leikur. Ég er ekki í nokkrum vafa um að við munum fá stórkostlegan stuðning og þetta verður geggjaður dagur.“
Maggi vill meina að það sé fótboltaæði í Mosfellsbæ

Maggi vill meina að það sé fótboltaæði í Mosfellsbæ

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.