05.09.26 - 10:14
Elvar Geir Magnússon
Moyes hefur aldrei talað við eiganda Everton

David Moyes, stjóri Everton.

Mynd: EPA

Bandaríkjamaðurinn Dan Friedkin á einnig ítalska félagið Roma.

Mynd: EPA

Frá Hill Dickinson heimavelli Everton.

Mynd: EPA

David Moyes, stjóri Everton.

Mynd: EPA
David Moyes stjóri Everton segist aldrei hafa hitt eða talað við eiganda félagsins, Dan Friedkin. Moyes snéri aftur til Everton og tók við sem stjóri í janúar 2025.
Friedkin er æðstur í 'Friedkin Group' sem rekur félagið frá höfuðstöðvum sínum í Houston. Hann hefur ekki mætt á heimaleik hjá liðinu síðan hann keypti félagið í desember 2024.
Hvernig Everton er rekið og hver tekur lykilákvarðanir er orðið hávært umræðuefni eftir misheppnaðan sumarglugga. Friedkin lætur tengdason sinn Rishi Majithia stýra daglegum rekstri í samvinnu við framkvæmdastjórann Angus Kinnear.

TENGT EFNI
Hver verður fremstur hjá Everton ef hann er ekki til staðar?
„Angus er minn helsti tengiliður. Hann er sá sem ég myndi tala við. Rishi er þar á eftir. Ég er ekki í beinu sambandi við eigendurna en ég kem skilaboðum til þeirra gegnum Rishi," segir Moyes.
Eftir lok gluggans stóð Everton eftir með aðeins átján aðalliðsleikmenn, einn leikmann í stöðu fremsta manns, einn hægri bakvörð og einn vinstri bakvörð.
„Við höfum fengið nýja eigendur sem eru enn að fóta sig og átta sig á hlutunum innan félagsins. Ég held að þetta muni batna eftir því sem við lærum betur inn á hvert annað," segir Moyes sem viðurkennir að gluggadagurinn hafi verið vonbrigði en hann muni lifa í gegnum það,
Moyes sýnir Everton hollustu og segir ekki í myndinni að ganga í burtu frá þeirri áskorun sem hann er að takast á við.
„Hugur minn til Everton er öðruvísi. Ég hefði ekki komið til baka fyrir neitt félaga annað en Everton. Ég býst við að stuðningsmennirnir gefi okkur kraft. Við þurfum að fá eitthvað aukalega frá þeim þar sem við erum þunnskipaðir, við þurfum á þeim að halda."
Everton mætir Manchester United klukkan 13 á morgun.
Eftir lok gluggans stóð Everton eftir með aðeins átján aðalliðsleikmenn, einn leikmann í stöðu fremsta manns, einn hægri bakvörð og einn vinstri bakvörð.
„Við höfum fengið nýja eigendur sem eru enn að fóta sig og átta sig á hlutunum innan félagsins. Ég held að þetta muni batna eftir því sem við lærum betur inn á hvert annað," segir Moyes sem viðurkennir að gluggadagurinn hafi verið vonbrigði en hann muni lifa í gegnum það,
Moyes sýnir Everton hollustu og segir ekki í myndinni að ganga í burtu frá þeirri áskorun sem hann er að takast á við.
„Hugur minn til Everton er öðruvísi. Ég hefði ekki komið til baka fyrir neitt félaga annað en Everton. Ég býst við að stuðningsmennirnir gefi okkur kraft. Við þurfum að fá eitthvað aukalega frá þeim þar sem við erum þunnskipaðir, við þurfum á þeim að halda."
Everton mætir Manchester United klukkan 13 á morgun.

Bandaríkjamaðurinn Dan Friedkin á einnig ítalska félagið Roma.

Mynd: EPA

Frá Hill Dickinson heimavelli Everton.

Mynd: EPA
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 2 | +4 | 6 |
| 2 | Arsenal | 2 | +4 | 6 |
| 3 | Hull City | 2 | +3 | 6 |
| 4 | Chelsea | 2 | +2 | 6 |
| 5 | Liverpool | 3 | +2 | 5 |
| 6 | Brentford | 2 | +3 | 4 |
| 7 | Newcastle | 2 | +2 | 4 |
| 8 | Everton | 2 | +2 | 4 |
| 9 | Leeds | 2 | +1 | 4 |
| 10 | Brighton | 2 | +3 | 3 |
| 11 | Man Utd | 2 | +1 | 3 |
| 12 | Sunderland | 2 | 0 | 3 |
| 13 | Ipswich Town | 3 | -4 | 3 |
| 14 | Bournemouth | 2 | -1 | 1 |
| 15 | Nott. Forest | 2 | -1 | 1 |
| 16 | Fulham | 2 | -2 | 0 |
| 17 | Coventry | 2 | -4 | 0 |
| 18 | Crystal Palace | 2 | -5 | 0 |
| 19 | Aston Villa | 2 | -5 | 0 |
| 20 | Tottenham | 2 | -5 | 0 |