Fotbolti.net
05.09.26 - 17:35
Viktor Ingi Valgarðsson

Nenad með beiskt bragð eftir leik útaf úrslitum sem felldu Grindavík

Auglýsing
Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis

Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin

Síðasti leikur Ægirs í Lengjudeildinni lauk með 1-1 jafntefli gegn Grindavík. Gestirnir komust yfir snemma og virtust ætla halda sér uppi í deildinni þar til eftir klukkutíma leik þar sem Ægir jöfnuðu. Það var löngu vitað að Ægir myndi spila í 2.deild næsta tímabil en með jafnteflinu tóku þeir Grindavík með sér niður um deild.

Lestu um leikinn: Ægir 1 - 1 Grindavík

„Þetta er eitt stig frá 0-0 jafnteflinu gegn Grindavík. Allir leikirnir þess á milli töpum við (Tíu leikir og sá Grindavík leikurinn var 26.júní). Þannig að sjálfsögðu er gott að enda á að tapa ekki, en það er auðvitað beiskt bragð útaf því með þessum úrslitum eru Grindavík að falla og ég kann mjög vel við klúbbinn (Grindavíkur liðið)."

„Ray Anthony (þjálfari Grindavíkur) er vinur minn. Fyrsti fótboltaleikurinn sem ég sá þegar ég kom til Íslands var Grindavík vs Keflavík. Það var fallbaráttu slagur árið 2005. Grindavík vann og björguðu sér í deildinni. Þannig að ég er ekki glaður þótt að við töpuðum ekki."

Aðspurning hvort það hafi því ekki verið nein hvatning fyrir liðið að reyna skemma fyrir og taka Grindavík með sér niður í 2.deild hafði Nenad þetta að segja: „Nei, nei nei, það væri kvikindislegt að mínu mati. Við vildum bara spila góðan leik og gera okkar besta. Reyna að vinna leikinn til að sýna að við værum betra en þessi stiga fjöldi sem við erum með. Ekkert um það að vilja draga einhverja með okkur niður um deild."

Liðið spilaði mjög fínan leik og Nenad talaði um að liðið ætti meira skilið en þetta og að hann gæti farið að nefna helling af vandamálum. Talar um að hafa klúðrað undirbúningum fyrir suma leiki og í öðrum ekki hafa notað nógu marga leikmenn. Hann minnist á þegar liðið fór á besta kafla sinn og náði einhverjum 7 stigum þá var hann rúlla á 12-13 leikmönnum og leik gegn Þrótti þegar þeir gerðu þrefalda skiptingu og keyrðu yfir þá hafi hann séð þetta. Hann tekur mikið á sig, telur leikmenn betri en þetta og að liðið í heild sé betra en hann hafi ekki verið „up to the task." 

Ægir endar tímabilið með 9stig í neðsta sæti. „Ef ég ber saman 2023 þegar við vorum síðast í Lengjudeildinni. Þá enduðum við líka með 9stig, þannig þetta virðist vera einhver töfratala. Í sumum leikjum vorum við nálægt góðum úrslitum en heppnin var síðan ekki með okkur. Á sama tíma þá þarftu að eiga hana skilið, þannig þetta er mjög blandað allt saman."

 Að lokum var hann spurður hvernig framtíð hans liti út með liðið. „Það er ekki ákveðið nú þegar. Mínir sérhagsmunir eru ekki alltaf í fyrsta sæti og ég held að þess vegna hef ég lifað af svona lengi hjá klúbbnum. Það er bara að sjá hvað klúbburinn vill og hvaða hugmyndir þeir hafa og hvert þeir vilja stefna. Það var eitthvað spjall, gæti verið að ég taki eitt tímabil í viðbót til að rétta klúbbinn við og kannski komast aftur í Lengjudeildina ef það er mögulegt. Ég tók við liðinu neðstum í 4.deild. Þannig hvort við færum upp eða ekki myndi ég fara, ef ég held áfram sem þjálfari."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.