Fotbolti.net
05.09.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rýnt í 22. umferðina - Fjögur lið berjast um sæti í efri hluta

Lokaumferð deildarkeppninnar ekki öll á sama tíma

Deildinni skipt í efri og neðri hluta eftir leikina á morgun.

Deildinni skipt í efri og neðri hluta eftir leikina á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

22. umferðin í Bestu deildinni fer fram um helgina, en það er lokaumferðin fyrir tvískiptingu. Það er ljóst að liðin sem enda í 4.-6. sæti gulltryggja sæti sitt í deildinni í dag en liðin í 7. og 8. sæti þurfa líklega að safna fleiri stigum til að bjarga sér.

Eftir tvískiptingu spila liðin í 1.-6. sæti einfalda umferð sín á milli og sömuleiðis liðin í 7.-12. sæti.
Víðir Sig: Hverjir mætast í lokin? - KA eða Þór á heimavelli? - Áfangar hjá Alex og Óla
TENGT EFNI

Víðir Sig: Hverjir mætast í lokin? - KA eða Þór á heimavelli? - Áfangar hjá Alex og Óla

Umferðin er mjög mikilvæg upp á framhaldið og því vekur athygli að leikirnir verða ekki allir spilaðir á sama tíma. KSÍ samþykkti að færa leik Keflavíkur og Vals og verður hann því spilaður í dag, á Ljósanótt, og því verða væntanlega talsvert fleiri í stúkunni en hefðu komið á morgun.

Keflavík situr í 5. sæti Bestu deildarinnar og tryggir sæti sitt í efri hlutanum með sigri. Sigur setur Keflavík upp fyrir Breiðablik í 4. sætinu, allavega fram á morgundaginn. Valur, sem er í 8. sæti, verður að vinna í dag til að eiga möguleikann á að enda í efri hlutanum. Valur þarf að vinna og treysta á að bæði Stjarnan og ÍA tapi sínum leikjum á morgun. Stjarnan og ÍA munu því vita á morgun hvort það sé hægt að ná Keflavík fyrir tvískiptingu eða ekki.

laugardagur 5. september
16:30 Keflavík-Valur (HS Orku völlurinn)

HInir fimm leikirnir í deildinni hefjast klukkan 14:00 á morgun.

Á Víkingsvelli er toppleikur umferðarinnar þar sem 1. sætið og 3. sætið spila innbyrðis. Víkingur er með átta stiga forskot á 2. og 3. sætið þegar sex umferðir eru eftir af mótinu. Það gefur auga leið að öll lið vilja vinna alla leiki, en með sigri Fram kæmi liðið sér í möguleikann á 2. sætinu. Það færi þá eftir því hvort KR misstígi sig á Akranesi gegn ÍA á sama tíma. Liðin sem enda í 1. og 2. sæti mætast innbyrðis í 27. umferð á heimavelli Víkings.

Á Akureyri fara fram tveir leikir á morgun. KA og Breiðablik eru tvö af köldustu liðum deildarinnar. Breiðablik er út af markatölu sinni öruggt með sæti í efri hlutanum, en leikmenn og þjálfarar vilja eflaust sjá jákvæða frammistöðu þar sem næsti leikur á eftir er sjálfur bikarúrslitaleikurinn gegn Aftureldingu næsta föstudag. KA er í botnsæti deildarinnar og vill augljóslega spyrna sér þaðan. Með sigri getur KA farið upp í 10. sætið.

Það hefur verið rætt og ritað um að það sé betra að enda í 10. sæti en 11. sæti þar sem 11. sætið fær heimaleiki gegn 10. og 12. sætinu í neðri hluta umspilinu. En auðvitað vilja liðin hafa eins mörg stig og mögulegt er áður en deildinni er tvískipt. Þór er í 10. sætinu og það breytist ekki þótt liðið sigri FH á morgun, en þrjú stig væru mjög mikilvæg fyrir liðið. FH er í 9. sætinu og gæti náð 8. sætinu ef liðið sigrar og markatalan sveiflast með Hafnfirðingum um helgina. FH hefur einungis tapað einum leik síðan í maí.

Í Miðgarði fær Stjarnan lið Eyjamanna í heimsókn. Jafntefli gæti dugað Stjörnunni til að ná sæti í efri hlutanum en það færi eftir úrslitunum úr leikjum Vals og ÍA. ÍBV er í 11. sæti og er án sigurs í tvo mánuði. Með sigri getur liðið komist upp í 10. sætið.

Það verður svo mjög athyglisverður leikur á Akranesi þar sem ÍA þarf mjög líklega að ná í sigur til að halda sæti sínu í efri hlutanum. Á sama tíma vilja KR-ingar halda smá pressu á Víkingum og halda 2. sætinu. jafntefli dugar ÍA ef Stjarnan vinnur ekki ÍBV.

Hér að neðan má hlusta á upphitun fyrir umferðina í Útvarpsþættinum Fótbolti.net

sunnudagur 6. september
14:00 Stjarnan-ÍBV (Miðgarður)
14:00 Þór-FH (VÍS völlurinn)
14:00 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
Öfug KRÍA upp á Skaga.

Öfug KRÍA upp á Skaga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Víkingur pakkaði Fram saman í fyrri leik liðanna í deildinni.

Víkingur pakkaði Fram saman í fyrri leik liðanna í deildinni.

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Valur og Keflavík mætast á Ljósanótt í dag.

Valur og Keflavík mætast á Ljósanótt í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þór tekur á móti FH í fallbaráttuslag.

Þór tekur á móti FH í fallbaráttuslag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.