05.10.13 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Dalglish snýr aftur til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kenny Dalglish snýr aftur til Liverpool eftir að hafa samþykkt að vera partur af stjórnarmönnum félagsins.
Dalglish yfirgaf félagið í maí 2012 eftir 17 mánuði í annari tilraun sinni sem knattspyrnustjóri félagsins.

Dalglish er goðsögn hjá stuðningsmönnum Liverpool, en hann hefur unnið ógrynni titla sem leikmaður og knattspyrnustjóri félagsins.
Hann var ráðinn í stjórn eftir fund með eigendum Liverpool, Fenway Sports Group, Ian Ayre framkvæmdastjóra og knattspyrnustjóranum Brendan Rodgers.
,,Það eru forréttindi og heiður að snúa aftur til Liverpool sem meðlimur stjórnar félgasins,\" sagði Dalglish.
,,Ég hef alltaf sagst vilja hjálpa til ef það væri eitthvað fyrir mig að gera. Þegar ég fékk símtalið hikaði ég ekki.
,,Ég hlakka til að vinna með stjórninni og gefa mitt framlag. Liverpool hefur gefið mér og fjölskyldunni svo mikið síðan við komum hingað fyrir rétt rúmum 36 árum.
,,Það er og hefur lengi verið forgangsverkefni fyrir mig að gera allt í mínu valdi fyrir félagið.\"