Fotbolti.net
05.10.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ribéry enn sár eftir 2013 - Kominn með þjálfaragráðuna

Ribéry enn sár eftir 2013 - Kominn með þjálfaragráðuna
Canon

Mynd: EPA

Franski fótboltasnillingurinn Franck Ribéry er ennþá sár yfir því að hafa ekki unnið Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu árið 2013, þegar Cristiano Ronaldo var kjörinn bestur með 27,99% atkvæða.
Ribery: Ég átti að vinna Gullknöttinn 2013
TENGT EFNI

Ribery: Ég átti að vinna Gullknöttinn 2013

Lionel Messi var næstbestur það árið með 24,72% atkvæða og fylgdi Ribéry eftir í þriðja sæti með 23,36% atkvæða.

Ribéry gerði garðinn frægan með FC Bayern og franska landsliðinu áður en hann lauk ferlinum í ítalska boltanum, með Fiorentina og Salernitana. Hann svaraði spurningum La Gazzetta dello Sport og ræddi meðal annars um Ballon d'Or.

„Við (Arjen) Robben mynduðum eitt hættulegasta kantmannapar heims. Við spiluðum saman í tíu ár og vorum óaðskiljanlegir frá fyrsta degi. Við erum mögulega meðal bestu kantmannapara fótboltasögunnar," sagði Ribéry og ræddi einnig um ást sína á Zinedine Zidane, sem leit á Ribéry sem litla bróður sinn og tók hann undir sinn verndarvæng.

„2013 var besta árið mitt, það var gullárið mitt. Ég var besti leikmaður þýsku deildarinnar og Evrópu og átti líklega skilið að vinna Ballon d'Or. Það var mjög sárt fyrir mig að vinna ekki verðlaunin, það er ekki erfitt fyrir mig að viðurkenna að það voru gríðarlega mikil vonbrigði. Ég átti magnað tímabil þar sem ég vann allt mögulegt. Ég gat ekki gert neitt meira en vann samt ekki."

Ribéry var lykilpartur af ógnarsterku liði Bayern sem vann þýsku deildina, bikarinn og Meistaradeildina tímabilið 2012-13. Hann skoraði 11 mörk og gaf 23 stoðsendingar í 43 leikjum, en það dugði ekki til.

Ronaldo tókst sama ár að skora 55 mörk og gefa 13 stoðsendingar í 55 leikjum með Real Madrid, á meðan Messi setti 60 mörk og gaf 17 stoðsendingar í 50 leikjum.

En hvað tekur við hjá Ribéry, sem lagði takkaskóna á hilluna fyrir fjórum árum?

„Ég hef ákveðið að gerast þjálfari. Fyrir mér er mikilvægasta hliðin á starfinu hvernig maður höndlar leikmannahópinn, það er mikilvægara heldur en hvaða taktík eða leikskipulag er notað. Ég hef spilað undir stjórn stórkostlegra þjálfara og hef stolið ákveðnum hugmyndum frá þeim öllum. Ég vil spila hápressu sóknarbolta, ekki ósvipað því hvernig Bayern spilar undir stjórn Vincent Kompany. Ég er mjög hrifinn af liðinu undir hans leiðsögn."

Ribéry hefur nýlega lokið síðasta skrefinu sem þarf til að öðlast æðstu þjálfaragráðu sem er í boði í fótboltaheiminum, UEFA Pro gráðuna. Hann er því með full þjálfararéttindi og getur tekið við félagsliði eða landsliði hvar sem er í heiminum.
Ribéry enn sár eftir 2013 - Kominn með þjálfaragráðuna
Canon

Mynd: EPA

Ribéry enn sár eftir 2013 - Kominn með þjálfaragráðuna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.