05.10.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Strákarnir mættir aftur til Keflavíkur

Strákarnir í U21 landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Strákarnir halda vonandi til Færeyja á efitr.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Strákarnir í U21 landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Strákarnir í U21 landsliðinu eru mættir út á flugvöll í Keflavík og eru vongóðir um að geta flogið til Færeyja eftir tæplega einn og hálfan tíma.
Veðrið hefur enn haft áhrif í dag. Liðið ætlaði að fljúga með Atlantic Airways klukkan 11:45 en búið er að færa flugtímann nokkrum sinnum og er hann núna 14:15.

TENGT EFNI
U21 liðið ekki enn farið til Færeyja - Frestun á flugi dagsins
Liðið átti upphaflega að fljúga í gær en fluginu var þá aflýst vegna veðurs.
Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, segir við Fótbolta.net að strákarnir séu mættir út á Keflavíkurflugvöll og þetta líti vel út núna. Í gær var farið í fýluferð út á flugvöll, en þetta líti betur út núna.
Framundan er gríðarlega mikilvægur leikur við Færeyja um annað sæti riðilsins en hann á að fara fram á morgun.
Ísland þarf að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland. Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni. Færeyjar eiga ekki lengur möguleika í riðlinum.