Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 05. nóvember 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Nani fékk ótrúlegt rautt spjald
Mynd: Getty Images
Nani, fyrrum kantmaður Manchester United, fékk að líta rauða spjaldið í 2-1 sigri Orlando City gegn Columbus Crew í MLS-deildinni í nótt.

Atvikið átti sér stað á 52. mínútu í leiknum í gær. Nani, sem er með fjólublátt hár þessa dagana, fór í tæklingu og náði boltanum.

Dómarinn ákvað hins vegar að reka Portúgalann af velli eftir að hafa skoðað atvikið í VAR-skjánum.

Athyglisverður dómur en Nani og aðrir leikmenn Orlando City trúðu ekki sínum eigin augum.

Orlando náði þó að vinna leikinn manni færri en Benji Michel skoraði sigurmarkið á 84. mínútu.

Hér að neðan má sjá atvikið.



Athugasemdir
banner
banner