Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. desember 2020 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Bróðir Cristiano Ronaldo undir rannsókn fyrir svik
Mynd: Getty Images
Hugo Dinarte Santos Aveiro, bróðir Cristiano Ronaldo, er undir rannsókn í Tórínó fyrir svik.

Hugo á lítið fyrirtæki sem býr til og selur ýmsa hluti eins og trefla og húfur merkta knattspyrnufélögum. Juventus hefur sakað fyrirtæki Hugo um að dreyfa treyjum sem eru nákvæmlega eins og opinberar treyjur félagsins.

Í heildina eru þetta 13 þúsund treyjur sem hafa verið seldar en framleiðsla þeirra hefur verið stöðvuð þar sem þær eru nákvæmlega eins og Adidas treyjur Juventus.

Hugo segist ekki hafa vitað af framleiðslu treyjanna en er undir rannsókn fyrir svik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner