Fotbolti.net
05.12.20 - 21:54
Victor Pálsson

England: Chelsea kom til baka og vann Leeds

England: Chelsea kom til baka og vann Leeds
Canon

Mynd: Getty

<b>Chelsea 3 - 1 Leeds</b>
0-1 Patrick Bamford('4)
1-1 Olivier Giroud('27)
2-1 Kurt Zouma('61)
3-1 Christian Pulisic('93)
Chelsea er komið á toppinn í ensku úrvalsdeildinni eftir leik við Leeds á Stamford Bridge í kvöld þar sem vantaði ekki upp á fjörið.

Leeds byrjaði leikinn virkilega vel í London og komst yfir með marki á fjórðu mínútu sem Patrick Bamford skoraði.

Bamford hefur verið heitur fyrir framan markið í vetur en hann er einnig fyrrum leikmaður Chelsea en fékk fá tækifæri.

Staðan var 1-0 þar til á 27. mínútu er Olivier Giroud jafnaði metin fyrir Chelsea og skoraði sitt fimmta mark í tveimur leikjum.

Chelsea vann Sevilla 4-0 í Evrópudeildinni á fimmtudag þar sem Frakkinn skoraði öll mörkin.

Það var svo Frakkinn Kurt Zouma sem kom Chelsea yfir í seinni hálfleik og skoraði sitt fjórða mark á tímabilinu.

Christian Pulisic innsiglaði svo sigur Chelsea í uppbótartímna með fínu marki eftir sendingu frá Timo Werner. Lokastaðan, 3-1.

Chelsea er einu stigi á undan Tottenham og Liverpool á toppnum en þau lið eiga bæði leiki á morgun.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.