Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. desember 2020 05:55
Aksentije Milisic
England í dag - Tekst Moyes að skáka Solskjær?
Íslendingaslagur á Turf Moor
Fagnar Moyes svona á morgun?
Fagnar Moyes svona á morgun?
Mynd: Getty Images
Það verður mikið fjör í ensku úrvalsdeildinni í dag en fjórir leikir eru á dagskrá og allir eru þeir sýndir í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Veislan hefst með Íslendingaslag í hádeginu þegar Everton heimsækir Burnley á Turf Moor. Burnley er í fallsæti á meðan Everton er um miðja deild en eftir frábæra byrjun á tímabilinu hefur liðið gefið eftir.

Manchester City fær Fulham í heimsókn kl.15 og í kjölfarið er áhugaverður leikur í London þegar Manchester United heimsækir West Ham en bæði lið hafa verið á hörku siglingu í deildinni að undanförnu.

Kvöldleikurinn fer einnig fram í London en þá mætast Chelsea og Leeds United á Stamford Bridge.

ENGLAND: Premier League
12:30 Burnley - Everton
15:00 Man City - Fulham
17:30 West Ham - Man Utd
20:00 Chelsea - Leeds
Athugasemdir
banner
banner