Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. desember 2020 14:39
Ívan Guðjón Baldursson
England: Man Utd með fjögurra stiga forystu
Mynd: Getty Images
Aston Villa 0 - 2 Man Utd
0-1 Leah Galton ('25)
0-2 Ella Ann Toone ('89)

Kvennalið Manchester United er í góðri stöðu á toppi ensku Ofurdeildarinnar eftir góðan sigur gegn Aston Villa í dag.

Man Utd var betra liðið allan leikinn og skoraði Leah Galton á 25. mínútu leiksins.

Stelpurnar frá Manchester stjórnuðu leiknum og voru óheppnar að tvöfalda ekki forystuna fyrr en undir lokin, þegar Ella Ann Toone kom knettinum í netið.

Lokatölur 0-2 og Man Utd með fjögurra stiga forystu á toppinum, með 20 stig eftir 8 umferðir. Aston Villa er með 3 stig eftir 6 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner