Á vef KSÍ hefur riðlaskipting og drög að niðurröðun leikja í Lengjubikarnum 2025 verið birt. Leikin er einföld umferð í riðlunum. Sigurvegarar riðlanna komast í úrslitakeppni mótsins og leika til undanúrslita.
Keppni í A-deild karla hefst í byrjun febrúar en hér að neðan má sjá hvernig riðlaskiptingin er í efstu tveimur deildum.
Breiðablik er ríkjandi Lengjubikarmeistari en liðið vann ÍA 4-1 í úrslitaleik á Kópavogsvelli í mars. Í riðli með Blikum á næsta ári verður meðal annars Völsungur sem endaði í öðru sæti 2. deildar á liðnu sumri og komst upp í Lengjudeildina.

A-deild karla:
Riðill 1: Grindavík, Fjölnir, ÍA, Valur, Vestri, Þróttur.
Riðill 2: Breiðablik, Fram, Fylkir, KA, Njarðvík, Völsungur.
Riðill 3: Afturelding, FH, HK, ÍR, Víkingur, Þór.
Riðill 4: ÍBV, Keflavík, KR, Leiknir, Selfoss, Stjarnan.
B-deild karla:
Riðill 1: Hvíti riddarinn, KFG, Kormákur/Hvöt, KV, Reynir S., Þróttur V.
Riðill 2: Augnablik, Árborg, Víðir, Víkingur Ó., Ýmir, Ægir.
Riðill 3: Árbær, Grótta, Haukar, ÍH, Kári, Sindri.
Riðill 4: Dalvík/Reynir, Höttur/Huginn, KF, KFA, Magni, Tindastóll.
Hér má sjá riðlaskiptinguna í heild (með C-deild)
Drög að leikjaniðurröðun
Athugasemdir