Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 06. janúar 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Breiðablik eitt liðanna á eftir Valdimar
Valdimar Þór Ingimundarson
Valdimar Þór Ingimundarson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það birtist frétt á Fótbolta.net í gær þess efnis að Valdimar Þór Ingimundarson væri að leita sér að nýju félagi til að spila með á næstu leiktíð.

Hann er ósáttur með spiltímann en hann tók þátt í helmingi færri leikjum á síðasta tímabili miðað við tímabilið þar á undan.

Samkvæmt Jostein Flo yfirmanni hjá Stromsgodset er áhugi frá tveimur liðum á Íslandi og einu í næst efstu deild í Svíþjóð.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Breiðablik endurvakið áhuga sinn á leikmanninum en það var rætt og ritað um það áður en hann fór til Strömsgodset frá Fylki árið 2020 að Breiðablik hefði áhuga á honum.

Sjá einnig:
Blikar sagðir girnast Valdimar

Athugasemdir
banner
banner
banner