Fotbolti.net
06.04.21 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Kormákur/Hvöt fær þrjá frá Spáni (Staðfest)

Kormákur/Hvöt styrkir sig.

Kormákur/Hvöt styrkir sig.

Canon

Mynd: Kormákur/Hvöt

Kormákur/Hvöt hefur fengið þrjá leikmenn til liðs við sig þrjá erlenda leikmenn fyrir komandi tímabil í 4. deildinni. Allir koma þeir úr neðri deildunum á Spáni en <a href="https://www.feykir.is/is/frettir/spanskir-fyrir-sjonir-kormaks-hvatar" target="_blank">Feykir greinir frá þessu. </a>
Markvörðurinn Guillerme Yepes Moreno (Guille) kemur frá Minerva í spænsku D-deildinni. Varnar og miðjumaðurinn Jose Corbalán Álvarez kemur frá Fortuna í E-deildinni og George Răzvan Chariton (Jorge) kemur frá El Palmar í D-deildinni.

„Gríðarlegar væntingar eru gerðar til þríeykisins frá Íberíu, en allir hafa þeir spilað undanfarið í þriðju efstu deild þarlendis, sem er deild ofar en flestir þeirra sem hingað hafa áður komið," segir á vef Feykis.

„Kormákur Hvöt leggur í leit sinni að liðsstyrk ekki minni áherslu á heilsteypta og vandaða persónuleika sem auðga félagsandann um leið og þeir sinna sínu á vellinum. Þessi þrjú púsl í heildarmyndina eru væntanleg til landsins innan skamms, enda styttist í Íslandsmót."

Kormákur/Hvöt hefur undanfarin tvö ár verið nálægt því að fara upp úr 4. deildinni. Tryggvi Guðmundsson tók við þjálfun liðsins í vetur en honum var sagt upp störfum á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.