Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 06. maí 2021 14:42
Ívan Guðjón Baldursson
Þór fær Daða Frey að láni frá FH (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Þór
Þór er búinn að staðfesta komu Daða Freys Arnarssonar að láni frá FH út tímabilið eins og Fótbolti.net greindi frá í gær.

Daði Freyr er 22 ára markvörður sem lék fimmtán leiki með FH fyrir tveimur sumrum en tapaði svo baráttunni um byrjunarliðssæti við Gunnar Nielsen.

Daði Freyr er nýlega búinn að framlengja samning sinn við FH til 2023 en hann þótti mikið efni og spilaði 15 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Daði á að leysa markmannsvandamál Þórs sem eru með tvo meidda markverði á upphafi tímabils.

„Bjóðum Daða Frey velkominn til Þórs og vonum að honum eigi eftir að líða vel hjá Þór," segir í frétt á vefsíðu Þórs.

Sjá einnig:
Daði Freyr framlengir við FH - Á leið til Þórs á láni
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner