Fotbolti.net
06.05.22 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arnór Smára: Alltaf sárt en það er tvennt í stöðunni

Auglýsing
Arnór Smárason.

Arnór Smárason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Smárason kom inn af bekknum og skoraði þegar Valur gerði 2-2 jafntefli gegn FH í Bestu deildinni í kvöld.

Hann var næstum því búinn að skora sitt annað sigurmark í sumar, en Matthías Vilhjálmsson kom í veg fyrir það með því að jafna metin fyrir FH.
„Við komumst yfir í 2-1 í lokin og það er svekkelsi að ná ekki að sigla því heim. Á heildina litið erum við þokkalega sáttir með stigið," sagði Arnór.

„Auðvitað hefði maður viljað setja eitt í viðbót í restina fyrst þeir ná að jafna. Við komumst í ágæta sénsa undir lokin. Þetta var þokkaleg innkoma, meira svona."

„Það er alltaf sárt að vera á bekknum, en þú hefur tvennt í stöðunni. Annars vegar er það að fara í fýlu og mæta með hálfum hug í verkefnið. Það hjálpar þér ekki neitt og það hjálpar ekki liðinu neitt. Á hinn bóginn mætirðu peppaður og gerir eins vel og þú getur á þeim mínútum sem þú færð."

„Við erum í þessu saman og það hefur ekkert breyst, hvorki hjá mér eða þjálfaranum. Við berum virðingu fyrir hvor öðrum. Það er bara áfram gakk, þetta er fótbolti."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.