28.07.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane hafnaði tilboðum: Eina starfið sem ég vildi

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Zinedine Zidane hefur verið ráðinn sem nýr landsliðsþjálfari Frakklands og talaði við fjölmiðla þegar hann var kynntur til leiks í dag.

TENGT EFNI
Zidane tekinn við Frökkum (Staðfest)
Zidane er algjör goðsögn í fótboltaheiminum þar sem hann var einn af allra bestu leikmönnum heims á tíma sínum sem atvinnumaður. Hann vann alla stærstu titlana sem leikmaður Juventus, Real Madrid og franska landsliðsins á gífurlega farsælum ferli sem fótboltamaður. Hann er einn af afar fáum í sögunni til að afreka að vinna HM, EM, Meistaradeildina og einstaklingsverðlaunin Ballon d'Or.
Sem þjálfari hefur hann náð sögulegum árangri. Hann hefur eingöngu stýrt Real Madrid á þjálfaraferlinum og tókst að vinna Meistaradeild Evrópu þrjú ár í röð frá 2016 til 2018. Hann er eini þjálfarinn sem hefur náð þessu afreki frá stofnun Meistaradeildarinnar árið 1992. Þar áður höfðu Ajax og FC Bayern unnið gömlu Evrópukeppnina þrjú ár í röð, en engum hefur tekist að toppa Real Madrid liðið sem vann Evrópukeppnina fimm sinnum í röð frá 1956 til 1960.
„Ég vil byrja á stuðningsskilaboðum til slökkviliðsmanna sem eru að berjast við eldana í dag. Þetta eru skilaboð til stuðnings allra þeirra fjölskyldna sem eru að glíma við erfiðar aðstæður útaf eldunum. Hugurinn minn er hjá þessu fólki," sagði Zidane og vísaði í þá ógurlegu elda sem geisa um Frakkland.
„Í dag held ég drauminum mínum áfram. Síðustu fjögur eða fimm ár hef ég fengið ótal starfstilboð frá félagsliðum um allan heim en ég afþakkaði. Ég afþakkaði öll starfstilboðin til að vera laus þegar tíminn kæmi til að taka við franska landsliðinu. Nú er sá tími loksins kominn.
„Þetta er eina starfið sem ég vildi taka við eftir að hafa stýrt Real Madrid. Það er ótrúlegur heiður að taka við landsliðinu og ég mun gefa mig allan í þetta verkefni."