Fotbolti.net
06.05.22 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England um helgina - Liverpool tekur á móti Tottenham

England um helgina - Liverpool tekur á móti Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildartímabilið er að líða undir lok og er enn hart barist á öllum vígstöðvum.

Það fer heil umferð fram um helgina þar sem Liverpool og Manchester City eru áfram í harðri titilbaráttu.

Liverpool mætir til leiks laugardagskvöldið í erfiðan heimaleik gegn Tottenham á meðan Man City tekur á móti Newcastle í síðasta leik helgarinnar á sunnudag. Tottenham er í harðri baráttu um Meistaraidledarsæti og munu lærisveinar Antonio Conte mæta á Anfield í vígarhug.

Helgin hefst á laugardag þegar fallbaráttulið Burnley getur unnið fjórða leikinn sinn í röð og komið sér í góða stöðu. Lærisveinar Michael Jackson eru tveimur stigum fyrir ofan Everton í fallsvæðinu en þeir bláklæddu eiga leik til góða.

Everton heimsækir Leicester á sunnudaginn á sama tíma og fallbaráttulið Leeds United heimsækir Arsenal, sem vermir fjórða sætið tveimur stigum á undan nágrönnunum í Tottenham.

Laugardagur:
14:00 Brentford - Southampton
14:00 Burnley - Aston Villa
14:00 Chelsea - Wolves
14:00 Crystal Palace - Watford
16:30 Brighton - Man Utd
18:45 Liverpool - Tottenham

Sunnudagur:
13:00 Arsenal - Leeds
13:00 Leicester - Everton
13:00 Norwich - West Ham
15:30 Man City - Newcastle

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.