Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 06. júní 2022 14:41
Ívan Guðjón Baldursson
Milner framlengir við Liverpool (Staðfest)
Mynd: EPA

Liverpool er búið að staðfesta að James Milner verður hjá félaginu út næstu leiktíð.


Milner spilaði 39 leiki á síðustu leiktíð þrátt fyrir hækkandi aldur. Hann er 36 ára gamall og verður 37 í byrjun janúar.

Milner hefði runnið út á samningi í lok júní og var með samningstilboð frá þremur öðrum félögum á borðinu en ákvað að vera áfram hjá stórveldi Liverpool.

Miðjumaðurinn fjölhæfi, sem getur einnig leikið sem bakvörður, tekur á sig launalækkun til að vera áfram.


Athugasemdir
banner
banner
banner