Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 18:37
Brynjar Ingi Erluson
Martial riftir í Mexíkó
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Anthony Martial hefur rift samningi sínum við mexíkóska félagið Monterrey Rayados. Þetta segir Fabrizio Romano á X í dag.

Martial, sem er þrítugur, gekk í raðir Monterrey á frjálsri sölu frá AEK á síðasta ári.

Á þessu tímabili skoraði hann aðeins eitt mark í tuttugu leikjum þegar Monterrey mistókst að komast í umspilið í mexíkósku úrvalsdeildinni. Félagið hefur nú náð samkomulagi við leikmanninn um að rifta samningnum einu ári áður en hann átti að renna út.

Martial er því frjálst að finna sér nýtt félag en ekki er ljóst hver næsti áfangastaður hans verður.

Frakkinn var einn efnilegasti leikmaður heims þegar hann gekk í raðir Manchester United frá Mónakó árið 2015. Hann spilaði með United í níu ár, lék 317 leiki og skoraði 90 mörk.
Slapp
banner
banner