Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 20:39
Brynjar Ingi Erluson
Stórkostlegur þrumufleygur Robinson dugði ekki gegn Þjóðverjum
Antonee Robinson (t.h) skoraði stórbrotið mark
Antonee Robinson (t.h) skoraði stórbrotið mark
Mynd: EPA
Leroy Sane gerði sigurmark Þjóðverja
Leroy Sane gerði sigurmark Þjóðverja
Mynd: EPA
Þýskaland vann síðasta æfingaleik sinn fyrir HM er liðið vann Bandaríkin, 2-1, á Soldier-leikvanginum í Chicago í Illinois í Bandaríkjunum í kvöld.

Kai Havertz, leikmaður Arsenal, kom Þjóðverjum á bragðið á 2. mínútu með skalla eftir vel útfærða aukaspyrnu Joshua Kimmich.

Bandaríska liðið jafnaði metin á 37. mínútu með stórkostlegu marki Antonee Robinson, sem er á mála hjá Fulham.

Boltinn var hreinsaður frá eftir hornspyrnu og kom Robinson á ferðinni og hamraði boltanum viðstöðulaust á lofti og efst í hægra hornið. Óverjandi fyrir Oliver Baumann sem átti aldrei möguleika á að verja.

Gleði Bandaríkjamanna varði ekki lengi. Snemma í síðari skoraði Leroy Sane sigurmarkið. Havertz fékk boltann í miðjum teignum eftir gott spil, lagði boltann út á Sane sem náði að þrýsta boltanum neðst í vinstra hornið.

Góður sigur Þjóðverja gegn Bandaríkjamönnum, en báðar þjóðir hafa lokið undirbúningnum fyrir heimsmeistaramótið. Bandaríkin mætir Paragvæ í fyrsta leik á HM eftir viku á meðan Þýskaland spilar við Curacao eftir átta daga.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner