Sky Sports segir frá því að Yaya Touré sé að taka við þjálfarastarfinu hjá slóvakíska stórveldinu Slovan Bratislava.
Touré er 43 ára gamall og verður þetta hans fyrsta starf sem aðalþjálfari.
Hann starfar sem aðstoðarþjálfari sádi-arabíska landsliðsins sem stendur og gæti farið með liðinu á HM áður en hann verður kynntur sem nýr þjálfari hjá Bratislava.
Touré hefur starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Olimpik Donetsk, Akhmat Grozny og Standard Liége á ferlinum auk þess að búa yfir reynslu sem þjálfari í akademíunni hjá Tottenham.
Sem leikmaður gerði hann garðinn frægan með Barcelona, Manchester City og landsliði Fílabeinsstrandarinnar.




