Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 06. júlí 2021 17:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hakimi kominn til PSG (Staðfest)
Mynd: PSG
Hinn 22 ára gamli bakvörður, Archaf Hakimi er genginn til liðs við PSG.

Hann kemur til liðsins frá Inter Milan, Inter fær 60 milljónir evra beint í kassann en PSG gæti þurft að borga árangurstengdar tekjur upp á 11 milljónir evra. Hakimi skrifar undir 5 ára samning við PSG.

Hakimi hefur leikið með stórum félögum á ferlinum en hann er alinn upp hjá Real Madrid og var á láni hjá Dortmund í tvö ár.

PSG er langt því frá hættir á markaðnum en búist er við að varnarmaðurinn Sergio Ramos og markvörðurinn Gianluigi Donnarumma gangi til liðs við félagið á næstu dögum.


Athugasemdir
banner
banner
banner