Ian Jeffs: Gáfum allt í þetta en það var ekki nóg
Auglýsing

Ian Jeffs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er svekkjandi. Við áttum færi til að vinna leikinn og í staðinn töpum við 1-0," sagði Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, eftir dramatískt tap gegn Val í Pepsi Max-deild kvenna.
ÍBV barðist hetjulega og það virtist stefna í markalaust jafntefli, þangað til Fanndís Friðriksdóttir skoraði í uppbótartímanum.
„Ég vil hrósa liðinu. Þær gáfu allt í þetta og gáfu Val virkilega erfiðan leik. Það vantar svolítið í okkar lið en leikmenn sem komu inn í staðinn gerðu fína hluti. Það er ekki hægt að biðja um meira; við gáfum allt í þetta en það var ekki nóg."
Jeffsy er tekinn við kvennalið ÍBV, samhliða því að vera aðstoðarþjálfari karlaliðsins. Hvernig hafa fyrstu dagar og vikur verið í þessu starfi?
„Þetta hefur gengið fínt, en eins og ég hef sagt frá byrjun er þetta bara tímabundið. Þetta er bara út tímabilið. Við erum að reyna að bæta liðið eins vel og hægt er, og þróa hugmyndir okkar inn í þetta. Ef við getum sýnt þessa frammistöðu í næstu leikjum, þá verðum við í góðu lagi."
Allt viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.