Fotbolti.net
06.08.26 - 11:45
Innkastið

Skilur eftir sig eitt stærsta skarð sem getur myndast

Gunnar Vatnhamar er með Víkingum í Thun.

Gunnar Vatnhamar er með Víkingum í Thun.

Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Fjallað hefur verið um það í vikunni að Víkingur er að selja færeyska varnarmanninn Gunnar Vatnhamar til danska félagsins Vejle.

Gunnar er úti í Sviss með Víkingum og verður með gegn Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann yfirgefur Víking en búist er við því að hann klári Evrópueinvígið.

Í Innkastinu var rætt um þessi tíðindi. „Hann er það mikilvægur fyrir þetta lið að maður myndi giska á að það sé hans vilji að taka þetta skref og próf eitthvað nýtt," segir Elvar Geir og telur að það hljóti að vera að Gunnar, sem er 31 árs, vilji færa sig um set.
Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
TENGT EFNI

Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi

Farið að hægjast á Oliver Ekroth
Í þættinum er talað um að það yrði gríðarlegur missir fyrir Víking að missa Gunnar. Meðal annars í ljósi þess að Oliver Ekroth sé á leið niður hæðina.

„Það er ekki lenskan í dag að kaupa 31 árs miðverði dýrum dómi í dag. Þetta er eitt stærsta skarð sem nokkurt lið getur fengið í sitt lið. Maður sér að það er farið að hægjast á Oliver Ekroth. Hann gerir tvö stór mistök í þessum leik gegn ÍA," segir Valur Gunnarsson.

„Ef þeir missa Gunnar Vatnhamar úr vörninni... er Sveinn Gísli nógu góður til að taka keflið? maður getur ekki reiknað með Róberti Orra vegna meiðsla."

Í þættinum var nánar rætt um þau skorð sem hafa verið hoggin í Víkingsliðið síðustu vikur.
Skilur eftir sig eitt stærsta skarð sem getur myndast
Canon

Mynd: Hörður Ágústsson

Oliver Ekroth.

Oliver Ekroth.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik17+829
5Keflavík17-522
6Valur17-719
7ÍA17-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA17-1115
11Þór17-2415
12FH17-1114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.