Elín Metta: Þurfum að skapa eitthvað moment
Auglýsing

Elín Metta skorar og skorar!

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

Elín Metta skorar og skorar!

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

„Mér fannst planið okkar ganga fullkomlega upp í dag. Við byrjuðum af krafti og það hélt bara áfram út allan leikinn,” sagði Elín Metta Jensen, fyrirliði Vals, eftir 8-0 stórsigur á Haukum.
Valskonur skoruðu fyrsta mark leiksins strax í upphafi og fyrirliðinn var ánægð með það.
„Það braut ísinn og bara gott að ná sem fyrst marki, klára það af. Ég held að það hafi gefið okkur byr undir báða vængi.”
Valsliðið hafði gríðarlega yfirburði allan leikinn. Hvernig er að spila slíka leiki?
„Það er náttúrulega öðruvísi og við þurfum að reyna að halda uppi einhverju tempói. Mér fannst það ganga vel hjá okkur í dag. Mér fannst við aldrei fara í að vera værukærar eða neitt slíkt. Mér fannst það bara ganga vel og maður þurfti alveg að halda haus.”
Elín Metta skoraði sjálf þrjú af átta mörkum Vals og átti auk þess tvær stoðsendingar. Hún er þar með orðin næst markahæst í deildinni. Aðspurð um mörkin var Elín Metta hógvær og þakkaði liðsfélögunum.
„Það voru liðsfélagar mínir sem skópu þau þannig að ég á þeim þetta að þakka algjörlega.”
En er ekki planið að blanda sér í baráttuna um að verða markahæst?
„Ég hef bara eiginlega ekkert verið að pæla í því. Ég er bara að hugsa um það að liðið mitt vinni og við verðum bara að sjá hvernig það fer.”
Framundan er nú tveggja vikna pása á deildinni vegna landsliðsverkefna. Elín Metta vonast til að Valskonur haldi áfram góðu gengi en segir það ekki sjálfsagt.
„Það þurfa bara öll lið að pæla í því hvernig þau ætla að koma til baka úr þessari pásu. Þetta eru tvær vikur og auðvitað er það ekkert sjálfsagt að eitthvað lið sem er á run-i núna haldi áfram. Það er bara eitthvað sem við þurfum að skapa aftur, skapa eitthvað moment. Ég hef samt alveg fulla trú á því að við getum klárað þetta mót vel,” sagði Elín Metta að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.