Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, vonar að Lionel Messi semji á endanum við Manchester City.
Messi er orðaður við brottför þessa dagana en hann sjálfur vill komast burt. Barcelona vill þó ekki hleypa honum annað og er ólíklegt að hann kveðji í sumar.
Möguleiki er hins vegar að Messi færi sig um set á næsta ári og taki eitt tímabil í viðbót með Barcelona þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.
Carragher er mikill aðdáandi Messi og vill einfaldlega fá að horfa á hann spila í ensku úrvalsdeildinni eins og margir aðrir.
„Ég vil sjá Messi í ensku úrvalsdeildinni, jafnvel þó að hann spili fyrir Manchester City og þá yrði erfiðara fyrir Liverpool að vinna deildina," sagði Carragher við Goal.
„Mig langar að horfa á hann í hverri viku, að mæta á leikina í persónu og fylgjast með honum. Ég yrði hæstánægður ef hann semur við City."
Athugasemdir